Jaja þá er bara komið að þessu 
Fyrir hálfum mánuði síðan kl. 14, var náttulega í skólanum en
það voru svona 5 mín. frímínotur á milli tíma og ég er eitthvað
bara að spjalla við Eyrúnu og svona og svo fæ ég sms og ég oppna
það bara eins og hvert annað sms. En þetta var allt öðruvísi sms
heldur en öll hin sem ég hef fengið! Þetta var frá henni móðir
minni og hún var að segja mér þær fréttir að tryggingarstofnun
hafði sagt JÁ !!!
OKI sko VÁ hvað ég varð glöð, ég stökk alveg upp og sko vá hvað
ég hef held ég aldrei orðið svona ...... kann ekki einu sinni að
lísa því 
EN ekki meira með það ....
EN ég var sem sagt að fá styrk til þess að fara á spítala í
Boston. Ekkert smá stór og góður spótali og þangað er ég að fara á
morgun!!!
Það er alveg komin dagskrá fyrir mig á bæði fimmtudaginn og
föstudaginn en svo er ég ekki viss með frammhaldið.
http://www.childrenshospital.org/
Linkurinn her fyrir ofan er sem sagt spítalinn sem ég er að fara
á.
Mér er byrjað að hlakka alveg til því loksins er eitthvað gert
eða langt síðan eitthvað var gert að viti. Því síðasta tilraun
endaði 5 vikur í rúminu þar af 24 dagar með um 40 stiga hita og um
2 vikur á spítala svo það var ekki þorandi að gera aðra svona
tilraun alveg strax hehe
En mig hvíður nú líka alveg fyrir því ég er nú ekki sú besta í
ensku og svo veit ég ekkert hvernig rannsóknir ég er að fara í og
af minni reynslu að dæma þá eru þær ekki allar dans á rósum
hehe
Svo verður þetta nú ansi erfitt þegar ég kem til baka því ég er
nátulega að missa slatta af skólanum ( Verzló ) og listdansskólanum
:/ en það verður bara að reddast því ég tel þetta nú það mikilvæt
að það skipti ekki máli þótt ég missi nokkra daga svona úr.
Jaja þá er ég að spá í að reyna að læra smá og klára að pakka og
svona
því ég fer fyrir úr skólanum til þess að fara bara beint
uppá flugvöll.
En mamma ættlar að taka tölvuna sína með og það er net á
hótelinu sem við verðum á svo ég á alveg eftri að komast í tölvu og
láta heyra í mér
EN þá kveð ég hér í byli
Öskubuska 
