hippó

Prinsessurnar

30.12.2007 01:12:54 / Öskubuska

Dauðari en það sem dautt er !!!

Úfff... jaja þá held ég að þessi blessðaða síða sé algjörlega dauð! Náttúrulega búið að vera mikið að gera hjá öllum í vetur og jólin ný liðin.

Mér persónulega finnst ekki gaman að blogga enda verða bloggin mín frekar niðurdrepandi enda er það oftast að ég blogga þegar mér liggur eitthvað á hjarta.

Jólin eru búin að vera frekar nice hjá mér eflaust eins og hjá flestum. Leti, át og video gláp en reyndar plús svefnleysi og reyndar ekki svo mikið át hjá mér heldur sultur kannski frekar betra orð yfir það.

En útaf því að ég er mjög léleg að skrifa og ekki beint gaman að lesa niðurdrepandi blogg frá mér þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra í byli!

En eitt að lokum. Eigið þið ykkur áramótaheiti. Ég á mér nokkur. Eitt af þeim sem hefur verið í 7 ár núna er að verða frísk án nokkura lyfja sem hafa endalaus áhrif á mig en þau hafa ekki náðst enn... en ég gefst ekki upp og verður það enn áramótaheitið mitt eins lengi og það þarf að vera það!

En ég á mér nú fl. sem ég ætla ekki að deila því þau eru frekar presónuleg. þau eru nú ekki öll alltaf þau sömu því stundum nær maður þeim og stundum ekki. En ég held áfram mínu stryki. Hlakka mikið til ársins 2008. Nýtt ár:D

Í mars er ég að fara til Black Pool ( veit ekki hvort það sé rétt skrifað;) og ég get ekki beðið því þetta er í fyrsta sinn sem ég fer á samkvæmisdansskepni erlendis:D sem mig hefur lengi

 langað að fara á. Bróðir minn er að fara að keppa þar og ég get ekki beðið eftir því að sjá hann keppa þar:D en svo næsta sumar er ég að fara til L.A og vonandi verð þar allt næsta sumar bæði í dansskóla og lifa lífinu þar með systir minni og familíunni :D

EN systir mín er að fara að yfirgefa mig í næstu viku. Er að flytja til L.A, það á ekki eftir að vera létt að vera hér án hennar! Á eftir að sakna hennar mikið !!!

 

En jaja ég ætla að hætta að þvaðra....

 

Berglind ÝR

 


Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.