hippó

Prinsessurnar

15.02.2008 22:18:14 / Öskubuska

Jebb... enn dauð!!!

 

Oki þetta er ekki hægt stelpur haha:D
æi mér er svo sem sama haha..... ekki eins og mér finnist voða gaman að blogga haha

En margt hefur gengið á hjá mér þessa dagana... Nemó búið eða allavega nemódagurinn sjálfur og var hann bara mjög skemmtilegur eins og alltaf :D Ballið hefðu nú mátt vera skemmtilegra en það var kanski bara ég...:/

En við erum nú komin á fullt að sýna leikritið í ár sem er Kræ- beibí eftir myndinni og hægt er að fara inn á www.nfvi.is/nemo og horfa á myndbandið og svo inn á www.midi.is og kaupa sér miða og svo inn á www.nemo08.net og skoða myndir og sjá syningarplan og eitthvað meira skemmtilegt:D

En ég hvet alla til þess að koma og sjá þessa frábæru sýningu:D Mikið fjör og gleði :D

En ef ég sný mér núna að öðru þá byrjaði ég í nýju lyfjameðferðinni í dag sem gekk bara mjög vel:D
En það er bara að halda áfram að vera jákvæður þá tekst þetta allsaman :D

Og annað að halda í vonina og trúa á sjálfan sig ! það er eitthvað sem ég er að læra þessa daganna. En ég var t.d. að hugsa í dag að þegar ég var yngri horfði ég á systir mína sem "ungling" hvernig hún lifði sínu lífi þá og mér fannst þá bara mjög sjálfsagt mál að ég myndi lifa því alveg eins þegar ég kæmi á hennar aldur...... en nei svo er ekki hehe.... við erum mjög ólíkar og ölumst upp við mjög ólíkar aðstæður .... en ég vil oft vera eins og hún.... en ég er bara ég svo ég :D

Jaja þá ætla ég að kveðja allavega í bili :D
Sakna ykkur stelpur mínar .... verðum að fara að hittast mjög fljótlega :***
Berglind Ýr :D


Ó já .... :D




Elskurnar mínar...Helga, Hlin og Eyrún :D


Meee... og Eyrún mín sæta :***



» 0 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 01:12:54 / Öskubuska

Dauðari en það sem dautt er !!!

Úfff... jaja þá held ég að þessi blessðaða síða sé algjörlega dauð! Náttúrulega búið að vera mikið að gera hjá öllum í vetur og jólin ný liðin.

Mér persónulega finnst ekki gaman að blogga enda verða bloggin mín frekar niðurdrepandi enda er það oftast að ég blogga þegar mér liggur eitthvað á hjarta.

Jólin eru búin að vera frekar nice hjá mér eflaust eins og hjá flestum. Leti, át og video gláp en reyndar plús svefnleysi og reyndar ekki svo mikið át hjá mér heldur sultur kannski frekar betra orð yfir það.

En útaf því að ég er mjög léleg að skrifa og ekki beint gaman að lesa niðurdrepandi blogg frá mér þá ætla ég ekki að hafa þetta lengra í byli!

En eitt að lokum. Eigið þið ykkur áramótaheiti. Ég á mér nokkur. Eitt af þeim sem hefur verið í 7 ár núna er að verða frísk án nokkura lyfja sem hafa endalaus áhrif á mig en þau hafa ekki náðst enn... en ég gefst ekki upp og verður það enn áramótaheitið mitt eins lengi og það þarf að vera það!

En ég á mér nú fl. sem ég ætla ekki að deila því þau eru frekar presónuleg. þau eru nú ekki öll alltaf þau sömu því stundum nær maður þeim og stundum ekki. En ég held áfram mínu stryki. Hlakka mikið til ársins 2008. Nýtt ár:D

Í mars er ég að fara til Black Pool ( veit ekki hvort það sé rétt skrifað;) og ég get ekki beðið því þetta er í fyrsta sinn sem ég fer á samkvæmisdansskepni erlendis:D sem mig hefur lengi

 langað að fara á. Bróðir minn er að fara að keppa þar og ég get ekki beðið eftir því að sjá hann keppa þar:D en svo næsta sumar er ég að fara til L.A og vonandi verð þar allt næsta sumar bæði í dansskóla og lifa lífinu þar með systir minni og familíunni :D

EN systir mín er að fara að yfirgefa mig í næstu viku. Er að flytja til L.A, það á ekki eftir að vera létt að vera hér án hennar! Á eftir að sakna hennar mikið !!!

 

En jaja ég ætla að hætta að þvaðra....

 

Berglind ÝR

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 20:22:38 / Mjallhvít

Holli Holli landi land

Jáhh halló halló

EKKERT að gerast á þessari síðu vá hvað þetta er bwaaa hahaha

en ég ætlaði bara að lát'ykkur vita að ég er að fara til Hollands óójee

ójá það er rétt ég er að fara að keppa í  jább þessu mmhmm

hahaha

en fyrst ég er byrjuð að blogga get ég svo sem sagt aðeins frá árshátíð númer 1 sem var um daginn hjá okkur menntskælingum :D

 Millarnir og Raggi Bjarna var þar til að trylla lýðinn ....þetta var æðislegt ball!!

og það sem meira er fórum við allar .. vei vei stelpur ...hingað og ekki lengra með að hittast svona lítið, ég er að verða vitlaus.... :P

heyrðu svo fékk ég hérna mynd frá Beggí Begg a.k.a. Öskubusku mohaha við svona heeví sætar og hressar :D vei vei vei!!!

 

 

IMG_3068.jpg picture by astasirri

 

haha nett ekki inní rammanum en við erum bara svo sææætaaaar :D

hilsen pilsen Mjásthvít og dvergurinn Sirrí


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 11:06:55 / Öskubuska

Anníe :D

 

 Elsku Anníe okkar til hamingju með afmælið vei vei

 

loksins búin að ná okkur ;)

Þínar bestustustu vinkonur Öskubuska og Mjallhvít

 

....vei vei


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 15:22:04 / Öskubuska

Color Blind

Motion Dance Company and Element crew kynna:

Danssýning sem sameinar ólíka heima dansins.

Modern-Breakdance-Afró

Tjarnarbíó 1. og 2. september kl:20:00
Miðaverð 1000 kr.

Kveðja Öskubuska:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 15:59:24 / Mjallhvít

they're taking the hobbits to isengard, to isengard, what did you say?..dadadadaaadadadaaaa....

við erum alltaf jafn sterkar í bloggunum hahaha...

 en skólinn byrjaður ...peningarnir að hverfa....thank god að það er mánaðarmót í næsta nágrenni fjúff :D

Jáhm með skólanum fylgir náttla ýmislegt og skemmtilegast af því eru vafalítið böllin, og fyrsta ball okkar MR-inga er 6 sept ...busablóð yeah ..vildi að við værum í  tóga til að geta hrætt litla busa...en það kemur að því hahaha :$

 jamm já ok ég ætlaði bara að láta vita að við erum á lífi...

og bendi á eins og 2 youtube myndbönd sem ég er hooked á fokk hahaha

 which Hogwarts boy/backstreet boy is gay :lol:

 http://youtube.com/watch?v=gLeYjr5vi0o

og They're taking the Hobbits to Isengard :haha:

 

 http://youtube.com/watch?v=Tin6NJqQQsM

 

Tell me where is Gandalf for I much desire to speak with him? :lol:

 kv. Mjallhvít


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 22:29:12 / Öskubuska

Tíminn sko flýgur áfram.....!

Þá er það bara komin águst:/ skólamánuðurinn. það verður ágæt að komast í skólan og hitta alla aftur og svona en ég er ekki alveg tilbúin að byrja að læra á fullu aftur og hafa aldrei tíma til að gera neitt! hehe

En um helgina er ég að fara norður:D hlakka ekkert smá mikið til:D verð nu ekki lengi en keyri með ömmu á morgun og fer að veiða með pabba og Birki :D fer svo að horfa á systir mína sína á Dalvík á laugardeginum:D og held svo áfram að veiða og keyri svo alein heim á laugardaginn:( það verður nu ekki beint gaman en læt tónlistina redda því :D hehe

EN það er ekki svo langt síðan ég kom frá London, þar sem ég var að skoða Laban:D Vá sko... þetta er ekkert smá flottur skóli sko! EN það er ekki en 100% ákveðið að ég fari í hann en mig langar að flytja út eftir ár svo ég stefni að því sama hvort það verði til London, svíðjóðar, Dk eða eitthvert annað:D

Hér sjái þið smá í skólann :D Hann er nu í svona smá súkí hverfi enda lengum við Lissie í því einn daginn að maður byrjaði að tala við okkur frekar krípílega einn daginn á leiðinni heim og loksins þegar við komumst í burtu sagði Lissie við mig að ég þyrfti að passa mig á svona gaurum því svona láta þeir þegar þeir vilja ræna þér! 8| og ég bara FOKK haha.......

 

EN ég kynntist alveg fullt af æðislegum krökkum:D og get ekki beðið eftir að hitta stelpurnar í október:D

Lissie, Aimée, Hannah and me :D

Kvöddumst með því að fara út að borða á  Pizza Express eftir æfingu næst seinasta daginn:(

En fyrstu helgina okkar þarna þá skruppum við mamma og Birkir til London og fórum á We will rock you :D og sko ertu að djóka hvað þetta var flott sjó !!! mig langar sko aftur:D hehe en er öruglega að fara á Mama mía í október og get varla beðið eftir því:D

Þarna sjái þið leikhússalin fyrir aftan okkur:D

en svo var bara versla svona eitthvað smá :$ haha og svo farið heim eftir allt of stuttan tíma! hefði alveg verið til í að vera þarna svona allavega mánuð í viðbót:D hehe

Kveðja Öskubuska :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 18:23:20 / Mjallhvít

helú

 

vildi bara sýna kappann í allri sinni dýrð ;)

kv. Mjallhvít


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 16:09:45 / Öskubuska

London...

Í nótt flíg ég til London og ætla mér að vera þar í 2 vikur :D

En ég var áðan svona að rifja upp síðustu sumur haha og fann eitthvað af svona pínu fyndnum myndum haha.......

Fjölskylduútilegan fyrir 2 árum...... góð minning Anníe haha........og þetta var nu frekar köld á .......hehe ;D

Fjölskylduútilegan fyrir ári síðan... hehe:D

Já ekki alltafgott að vera lítill og elta þá stóru haha.....þetta er eitthvað sem ég og Anníe gleymum aldrei! þegar ég náði ekki að stökkva yfir heldur datt beint ofan í ísköldu án haha....

Hahaha.....kúlan góða :D

En jaja eins og þið sjáið þá hef ég ekkert að segja að viti haha......

Svo ég bara kveð ykkur og sé ykkur aftur efitr....... ja 2 vikur:D

Öskubuska :D

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 22:33:34 / Öskubuska

Sumar....sumar...sumar :D

 

 

 

Vá hvað er nu langt síðan maður bloggaði síðast. Sumarið komið og mikið að gera. Allir að vinna á milljón en reyna að njóta sumarsins í leiðinni :D

Ég sjálf er á fullu að vinna og er svo oft á æfingu. En núna styttist í það að ég fari að kveðja ykkur því ég er að fara til London að skoða dansskólann Laban. En þið lostnið þó ekki lengi við mig því ég verð nú bara 2 vikur:P

 

.................................................................Úllllalalalal.............................

Svo vorum við stelpurnar nú í Dk um daginn eins og Ásta sagði frá:D Þetta var sko klikkað skemmtileg ferð og sko JUstin marrrr..... úff..... fæ alveg í magan á því að hugsa um hann haha....:D  og við náum að eiða nokkrum aurum þar haha... a.m.k ég hehe :P Svo stendur tívolíið vel uppúr hjá mér fyrir utan tónleikana að sjálfsögðu :P þar sekltum við Anníe okkur í örulega öll tækin og ásta kom með í öll þau sem fór ekki í einhvja endalausa hringi haha... sovna ælutæki :D

En ég var að reyna að setja myndir frá DK inná netið en myndasiðan mín er í einhverju fokki :/ og ég hef ekki nennt að búa til nýja :/ svo þið fáið fl. myndi seinna stelpur mínar ;) og við verðum líka að sameina þær :D til  að fá nú alla söguna hehe :P

Kveðja Öskubuska :D

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 20:23:20 / Mjallhvít

Danaveldi

jæja þá erum við allar komnar á þennan svokallaða klaka frá Danarveldinu ég kom í gærkvöldi vá hvað flugvélar eru leiðinlegar haha

en já Klakinn er ekki klaki þessa dagana sem er náttúrulega bara yndislegt..ekkert betra en að fara úr grenjandi rigningu í Köben í sól og sumaryl á Íslandinu góða aaahm namm namm

En þessi ferð var geðveik í alla staði ég fílaði meira að segja rigninguna!

Justin tónleikarnir voru svo óóendanlega geðveikir að það er ekki hægt að koma orðum að því! Hann er bara bestur, hversu góður söngvari getur einn maður verið live...váh :D love him =*

Allavega okkur tókst nú öllum að eyða smá pening og þar sem ég var viku í viðbót þá getum við orðað það þannig að allur peningur er uppurinn!! haha besta tilfinning í heimi..versla bara og versla þangað til að maður man ekki hvernig það var að finna fyrir tánum.. (eftir allt búðarrápið)  ..og puttunum (eftir alla pokana!!)

Svo fórum við auðvitað í tívolíið það var snilld ...var dauðhrædd í pomputurninum  (þó svo að ég hafi farið áður) en mér tókst að gera stelpurnar dauðhræddar með mér VONA ég amk ..fórum svo þrisvar í rússíbanann hahaha stuttur eeen bragðgóður ..snilld snilld

en já þetta er ferðasagan í hnotskurn .......myndir koma svona hægt og hægt...skil ekkert í þessu rugli...

Picture023.jpg------Picture018-1.jpg helt sikkert

nóg í bili held ég

Mjallhvít sólbrennda :^) :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 09:59:09 / Öskubuska

Ásta sæta orðin stór :D

Jaja þá var nu heldur betur merkilegur dagur í gær! Ekki það að það sé ekki merkilegur dagur í dag heldur að í gær átti hún Ásta Sirrí mín ( Mjallhvít) afmæli  :D og varð hún þá 18 ára og er loksins búin að ná mér:D

Það var frekar ömurlegt að við stelpurnar gátum ekki gert neitt fyrir hana í gær því anníe stakk af í útilegu og ég var að vinna:/ en ég gat nu þó boðið afmælisbarninu uppá ís :D

En Elsku Ásta mín :D innilega til hamingju með afmælið :*** ég vona að þú hafir átt góðan dag í gær en þú veist það líka að þú átt eftir að fá annan afmælisdag frá mér og Anníe sem á eftir að toppa allt haha...... ;)

Afmæliskveðjur Öskubuska og Litla hafmeyjan :D

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 18:12:22 / Mjallhvít

mjá

Stelpur þið eruð ekki að standa ykkur...littlu kríp =* hahaha

hahaha...mííhíí

kv. Mjallhvít


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 12:21:27 / Mjallhvít

Rigning

venjulega ef ég væri að tala um þessa mynd skrifaði ég án alls vafa um Pirates of the Caribbean ...en nei ekki núna

sjáiði rigninguna hjá henni??

hafiði prófað að bera út póst í svona rigningu....fokkin stuð sko!!

leiðinlegt hvað fólk á Vatnsenda...a.k.a Heimsenda fékk blautan póst...litlu greyin

Svo var ég að pæla hvort einhver hefur númerið hjá VeðurGuðunum?? Eða e.t.v Sigga Stormi??

Það er nefninlega svo merkilegt að um leið og ég byrja að vinna á Póstinum kemur rigning, þannig að eina ráðið til að það hætti að rigna er að finna inni starf handa mér..búhú hahaha

Mjallhvít rignda (haha var ég að búa til orð!!) 8) 


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 12:43:10 / Mjallhvít

Stóóóór

Hún Berglind litla lipurtá haha a.k.a. Öskubuska á ammili í dag :D

 Hún fær þann vafasama heiður að vera elst ..hún er gömul og grá í dag blessunin 18 ára pía :haha:

beggaamm.jpg

Til hamingju með afmælið sæta =* 

veijj veijj :lol:


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4